ÍSÍ stofnar Vélhjóla- og vélsleðaíþróttanefnd

Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur skipað þá Aron
Reynisson, Alexander Kárason og Njál Gunnlaugsson í Vélhjóla- og
vélsleðaíþróttanefnd ÍSÍ.
Vélhjóla- og vélsleðasportið hefur vaxið mjög ört á undanförnum árum enda
íþróttagrein sem hefur átt vaxandi fylgi að fagna erlendis. ÍSÍ hefur verið í
góðu 

 samstarfi við samgönguráðuneytið um utanumhald þessara íþróttagreina en
nauðsynlegt er að herða eftirlit og setja reglur um íþróttastarfsemi á þessum
vettvangi. Í dag eru um 15 félög starfandi á landsvísu í þessum
íþróttagreinum en þau hafa ekki öll fengið aðild að íþróttahreyfingunni. Því
mun það verða forgangsverkefni á næstu mánuðum að aðstoða félögin við að
sækja um inngöngu í viðkomandi héraðssambönd og íþróttabandalög á landsvísu. Einnig
verður lögð mikil áhersla á að efla og samræma starf félaganna við nefndina
og að marka íþróttalega stefnu í þessum málaflokki.

Skildu eftir svar