Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Gylfi Freyr Farinn í víking til USA

Gylfi er farinn til USA, hann verður þar í tæpa fimm mánuði, kappinn keppir um hverja helgi. Hann vinnur hjá við garðyrkjustörf á daginn með Brent nokkrum sem er við það að verða “Pro” í motocrossi, félagarnir æfa mikið á kvöldin og keppa um hverja helgi, um helgina fóru þeir til Louisiana næstu helgi fara þeir til Florida og hina til Texas. Kappinn keppti í gær í Arena Crossi, við æfingu krassaði hann með þeim afleiðingum að hann rotaðist. En hann keppti um kvöldið C flokki og endaði 5 sæti. Brent keppti í Pro classa og endaði í 4 sæti. Gylfi sagði það frábæra tilfinningu að keyra fyrir fullri höll af fólki en áhorfendurnir voru hvorki meira né minna en 8000 manns. Á sunnudaginn ætluðu kapparnir að keppa utandyra í motocross keppni sem öllum þáttakendum úr Arena crossinu var boðið að taka þátt í. Ég sendi hér nokkrar myndir af kappanum í USA þar sjáið þið húsið sem hann býri í og félaga okkar Brent.
Mbkv. Þór Þorsteinsson


Hvaleyrarvatn Janúar 2005

Þröstur sendi inn þetta frábæra video sem er frá síðustu helgi á Hvaleyrarvatni. Skemmtilega unnið og flott. Tónlistin er “To Get Down” með Timo Maas.

[flv width="420" height="315"]http://www.motocross.is/video/mxtv/11/hvalvatn3.flv[/flv]


Nokkur tips

Þegar farið er af stað með hjólið á Kerru!!! 

Þá er gott að hafa sett börð á kerruna að framan svo að hjólið,sem kannski var skínandi hreint þegar lagt var af stað verði ekki salt stokkið og drullugt er komið er á ísinn:) Þetta virkar líka öfugt þegar haldið er heim,oft það kallt og fólk þreytt að ekki nenna að þrífa hjólið áður en því er lagt í viku eða meira!!!

Selta,drulla og vatn vinna best sem ætandi efni á málma og plast,þegar mikil breyting er á hita og raka. Sem sagt ef að þú vilt fá málm til að tærast,þá er best að skipta sem oftast um hita og raka stig!!! þá færðu flott rið og tæringu:) (ath innanhúshönnuðir)

Handföng á stýri. 

Þótt að handhlífar séu notaðar,eiga þær til að brotna í frosti,skælast á stýri og ökumaður sem reisir við hjólið eftir byltu,er oft bremsu eða kúpling laus eftir byltuna!

Þá er gott ráð að vera ekki með festingarnar fyrir ofan nefnd handföng alveg föst. Jafnvel að vera með teflon límband eða smá smurefni undir,til að festingarnar geti snúist við byltu.

Dekk! þaes þrýstingur. 

það ber að hafa í huga að ís er ekki bara ís! (Sjá “Smillas sens of snow”) ísinn eða frerinn er aldrei alveg eins! Stundum er betra að vera á skrúfum,stundum er trellinn jafn góður,stundum er færið gott og stundum alveg ferlegt!!!

Gott er að vera með loftpumpu og fikra sig áfram með mismunandi loftþrysting. Til dæmis að setja 12 pund í dekkin heima( ca 10 á ísnum í kulda) og tappa smám og smátt af þar til góðu gripi er náð.

Fjöðrun. 

Þar sem akstur á ís og frera,er líkari malbiks akstri.Þá er betra fyrir endurohjól að stilla demparanna stífar en ella. Fólk á Motocrosshjólum þarf ekki mikið að spá í þetta,en það gildir jafnt fyrir Cross og enduro hjól að lækka hjólið eins og hægt er. Það er auðveldast að lækka hjólið að framan= Beygir betur(skarpar)

Áseta. 

Það virkar vel á ísnum og fólk finnur greinilegar fyrir breitri líkamsstellingu á ísnum en á möl eða torfærum,hjólið er rásfastara og hreyfing ökumans er bersýnilegri. Þá á ég við að fara framá hjólið í beygjum og láta sig renna aftur á sætið er gefið er í eftir beygju.

Þá er bara eftir að borða vel áður en farið er af stað.Hafa drykkjarvatn og nóg af því. Hita upp lítileiga,liðka hendur og hita því oft verða hendur kaldar og virka ekki vel fyrr en hiti er komin í líkamann.

Og gott er að muna eftir!…Að ef þér er kallt á fótunum….Settu þá upp húfu.

Með kveðju. sveinn@enduro.is


Tips á Ísinn

Nú eru allir komnir á fullt á ísnum og jafnvel í harðfeni…. Þá er tilvalið að minna menn á helstu atriði til að losna við að lenda í vandræðum með hjólið í FROSTINU!!

-Ísvari í bensínið þetta má reyndar gera árið um kring þar sem að ísvarin virkar til að eyðe vatni úr eldsneyti hjólssins auk þess að bæta octantölu!
-Munið að hafa allar oliur ferskar! þetta minkar líkurnar á að pakkdósir fari að leka, eins má líka nota þynnri oliur í kuldanum.
-til að koma í veg fyrir að blöndungar frjósi fastir má setja einhverskonar plast,gúmí eða jafnvel pappa hlýf frá cylindri til blöndungs!
-Nýjan bremsuvökva !! bremsuvökvi blandast vatni en vatn frýs við frostmark þetta getur haft miður góð áhrif á bremsukerfið…
-Frostlögurinn í lagi??
-Annars vil ég minna á ádreparana fyrir ísinn þú vilt ekki fá skrúfudekk yfir þig með allt í botni ef einhver missir vald á hjólinu…

Ef þið hafið spurningar endilega hafið samband raggi@raggi.is eða Véljól og Sleðar 5871135

Með kveðju Raggi VH&S

Daginn eftir kom þetta:

Góð ráð frá Ragga um “tips fyrir ísinn” nú er bara að fara eftir þeim.
Ég vill benda mönnum á nokkur atriði til viðbótar:

Á þessum árstíma hafa hjólin oft staðið í langan tíma óhreifð inní skúr
með hálffullan bensín tank. Gæðin á bensíni á Íslandi eru annsi misjöfn og
hefur borið á því í haust og vetur að bensínið sem er verið að selja okkur er
frekar lélegt. Þetta þýðir að eftir nokkra vikna geymslu missir það kraftinn (octan)
og hjólin verða mjög slæm í gang, sprengja og freta. Best er að tappa bensíninu af tanknum,
öllu í brúsa, tæma undan blöndungnum og setja nýtt bensín á hjólið.

Gott er að setja líka nýtt kerti. Þetta á sérstaklega við nýju 4 stroke hjólin en 2 stroke þarf að
huga vel að líka þar sem blandað bensín þolir ílla geymslu.

Til að sóa ekki gamla bensínu má bara hella því á bílinn þar sem hann brennir
lélegu bensíni án vandræða.

Þegar frostið fer niður fyrir -5C getur líka verið gott að loka
öðrum vatnskassanum, þannig gengur mótorinn heitari ca. 85C.

Raggi benti á að klæða blöndunginn af og hafa menn jafnvel notað “lopa” sokk utan um hann.

…og í lokinn eins og frændi sagði við mig um árið “Guð gefi ykkur fulla ferð og engar bremsur”
kveðja,
Katoom

Síða 2 af 212