Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Ísakstur á Stöð 2

Það kom smá klippa í lok frétta Stöðvar 2 frá ísakstri á Egilsstöðum þar sem verið var að keyra í glampandi sólskinin á Lagarfljótinu.
Það er hægt að skoða þetta á visir.is – vef tv – fréttir 30.1.05 og stilla á ca 38 mínutur.     Kveðja frá Egilsstöðum
Og talandi um ísakstur þá sendi Aron inn þennan link á síðu sem hann segir marga þekkja, en það er búið að uppfæra útlitið. Þetta er Finnsk síða um ísakstur sem heitir Iceroadracing.


Spennandi tímar

Ætli þessa árs verði ekki helst minnst fyrir að vera ár 450cc enduro  hjólanna. Þvílíkt framboð hefur aldrei áður sést og þvílík samkeppni. Þið  megið búast við að sjá risa reynsluakstur á flestum (ef ekki öllum)  þessara hjóla á vormánuðum í íslenskum fjölmiðlum. Ekki missa af því.   Lesa meira af Spennandi tímar


Dagbók drullumallara

Þórir fór á ísinn um daginn með Hauki í Nitró og tók smá test á ísnum. Einnig voru félagarnir með sniðuga breytingu á fjórhjóli sem þeir kölluðu í gríni B&B&B

forsida

Lesa meira af Dagbók drullumallara


Um götuskráningu frá USA

Nú þegar US dollar er í sögulegu lágmarki gagnvart íslenskri krónu hugsa margir sér gott til glóðarinnar með innflutning á hjólum frá Bandaríkjunum. Þar sem verðið í Bandaríkjunum er neglt fast fyrir árið þegar nýjar árgerðir koma á markað (ekki sveiflað eftir gengisþróun eins og hér) eru dæmi þess að jafnvel ný evrópsk hjól séu keypt þaðan á hagstæðara verði en umboðin hér geta boðið. Þetta er að sjálfsögðu bagalegt fyrir íslensku umboðin en svona er þetta bara og þau verða bara að bjóða betri verð til þess að mæta þessu ;-) . Auk þess má jú ekki gleyma að þau fá sinn skerf af varahlutasölu í þessi hjól. Eins og margir vita þá hef ég haldið uppi stífum áróðri fyrir því að menn götuskrái öll ný endurohjól þar sem þessi svokallaða torfæruskráning er á mjög gráu svæði. Ég veit til þess að menn hafa einnig breytingaskráð eldri endurohjól og síðastliðin ár hefur töluverður hluti þeirra verið fluttur inn frá Bandaríkjunum. Ég skaut inn klausu um daginn um það að Umferðarstofa hefur gert breytingar þess efnis að nú verður að framvísa vottorði framleiðenda um að viðkomandi ökutæki mæti mengunarkröfum til þess að hægt sé að breytingaskrá eldri hjól. Íslensku umboðin vilja að sjálfsögðu ekki aðstoða menn við að útvega þessi vottorð og af þeim völdum eru eigendur þessara hjóla í erfiðri stöðu. Það er rétt að taka það fram að öll nýrri hjól sem koma frá Bandaríkjunum mæta fyllilega þessum mengunarkröfum. Ég vil því benda þeim aðilum sem hafa hug á að flytja inn Endurohjól frá Bandaríkjunum að þeir verða að biðja söluaðilann þar að skaffa þeim U.S. EPA Certificate of Conformity fyrir þetta tiltekna hjól. Ef menn vilja breytingaskrá eldra hjól þá er hægt að skrifa til viðkomandi framleiðenda í USA og biðja um þetta skýrteini. Ég veit til þess að það hefur gengið.

Kveðja

Aron


Endurohjól

Ætli þessa árs verði ekki helst minnst fyrir að vera ár 450cc enduro
hjólanna.
Lesa meira af Endurohjól


Um götuskráningu á Endurohjólum innfluttum frá USA.

Nú þegar US dollar er í sögulegu lágmarki gagnvart íslenskri krónu hugsa margir sér gott til glóðarinnar með innflutning á hjólum frá Bandaríkjunum. Þar sem verðið í
Lesa meira af Um götuskráningu á Endurohjólum innfluttum frá USA.

Síða 1 af 212