Fulltrúi Sniglanna í Umferðarráð

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, hefur skipað fulltrúa Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglanna, í Umferðarráð. Var Dagrún Jónsdóttir tilnefnd til setu í ráðinu af hálfu Sniglanna en varamaður hennar er James Alexandersson.
Fram kemur í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu, að Sniglarnir hafi í gegnum tíðina unnið ötullega að fræðslu og áróðri í því skyni að fækka slysum og óhöppum þar sem bifhjólafólk kemur við sögu. Þetta starf hafi skilað sér í mikilli fækkun bifhjólaslysa. Á undanförnum árum hafi bifhjólaslysum fækkað hér á landi þrátt fyrir að bifhjólum hafi fjölgað sem og þeim dögum sem þau eru skráð. Árið 1992 voru skráð 113 bifhjólaslys, en árið 2001 var talan komin niður í 61. Þrátt fyrir ofangreinda þróun, þá láti að meðaltali þrír bifhjólamenn lífið í umferðarslysum á hverju ári. Það sem af sé árinu hafi 16 manns látist í umferðinni, þar af tveir bifhjólamenn.

Skildu eftir svar