Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Tilkynning frá KTM Austria

KTM Rally ökumaðurinn Richar Sainct frá Frakklandi lést í dag eftir að hafa mist stjórn á KTM 660 Rally hjóli sínu í Rallye des Phararons.
Richard Sainct vann Dakar Rally 3 sinnum.


Ævintýra hjólaferð til Bretlands

Helgina 5. – 7.og 18. – 21. nóvember stendur KTM Ísland og KTM Adventure Tours UK fyrir ferð til Bretlands í hjólabúðir hjá KTM Adventure Tours við Plymouth.
Flogið verður út fimmtudaginn 4. og 18. nóvember með seinni vél Icelandair til London, þar verður hópurinn sóttur og keyrður á Wheeldon Farm sem er rétt við Plymouth í suður Englandi..

Lesa meira af Ævintýra hjólaferð til Bretlands


Fjölskylduferð til Ólafsvíkur AFLÝST

Vegna lélegrar þátttöku og lélegs veðurútlits, neyðumst við til að aflýsa áætluðum hjóladögum fjölskyldunnar á Ólafsvík dagana 2. og 3. Október um óákveðinn tíma.  kv. Nikki.  Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar.


Townley og Pichon klára tímabilið með sigrum

Ben Townley KTM og Mickael Pichon Honda eru sigurvegarar í fyrsta Suður
Afríku GP síðan 1985.

Townley á KTM vann sinn níunda O/A sigur á tímabilinu eftir að hafa
klárað 1-1 í MX2 flokknum. Pichon á Hondu vann fyrra mótoið í MX1 og over
all, en Choppins á Hondu vann síðasta móto ársinns.

Stefan Everts kláraði annar í fyrra mótoinu, en í því síðara lenti
hann í samstuði við Pichon og datt, Everts hætti þá keppni. Everts sem
er áttfaldur heimsmeistari, brást hinn versti við og gékk yfir að
næstu beygju og kastaði gleraugunum í Pichon þegar hann fór framhjá í
svekkelsiskasti.

Choppins sem vann mótoið sagði: Pichon tók Everts út og ég sá gult
flagg, þá sá ég Everst standa á brautinni og reyna að taka Pichon út.
Ég rétt slapp við að lenda í árekstri við Pichon.

Það voru svo Choppins á Hondu og Steve Ramon á KTM sem fóru á pall
með Pichon, en Everts lenti í áttunda o/a. Ramon og Strjibos voru jafnir
að stigum, en Ramon endaði tímabilið í fjórða sæti.

Fyrra mótoið í MX2 getur flokkast undir eitt það besta á
tímabilinu. Townley á KTM náði snemma forystu, en var hundeltur af
Rattray á KTM og Sword á Kawasaki. Frábært race, en gírkassinn hjá
Sword klikkaði og Townley náði að halda forystu til loka og vann
tuttugasta mótoið á tímabilinu.

Í seinna mótoinu var það Antonio Cairoli á Yamaha sem var í keppni
við Townley, en Townley náði 3 sek forystu og hélt henni. Rattray varð
svo þriðji.

O/A varð staðan þannig að Towley varð fyrstur á KTM, #2 Rattray á KTM
og #3 Cairoli á Yamaha. Þetta urðu einnig lokaúrslitin í MX2 flokknum
og í MX1 varð lokastaðan að Everts á Yamaha varð meistari, annar varð
Pichon á Hondu  og þriðji Choppins á Hondu.


Flott mynd


MX GP á Eurosport í kvöld

Rétt að minna menn á að umfjöllun verður á Eurosport í kvöld um FIM Motocrossið í Suður Afríku sem var um helgina. Og samkvæmt Sjónvarp.iser þetta svona:   23:30 Motocross: World Championship South Africa

Síða 1 af 612345...Síðasta »