Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


HEYRST hefur ágúst 2004

25.8.2004…að Katoom kunni að búa til límmiða.
…að karlmenn keyri 500 eða hvað….?
…að lítill (stór) ís í Snælandvídeó sé með Austurískri dýfu.
25.8.2004…að hægt sé að fá allar CC stærðir í KTM
…að þú bara skiptir um límmiða
…að David Knight hafi verið á 450
…að SXS 540 sé bara prentvilla
…að hjólið sé bara 450cc
…að lítil ís sé stór í Snæland Video
25.8.2004….að 5.KTM Ferðin sé um næstu helgi
…..að farið verði á staði þar sem enginn hefur hjólað áður
….að eins einn núlifandi Íslendingur hafi farið í þær allar
…að hann hafi svindlað sér í fyrstu ferðina
25.8.2004…there is no replacement for displacement.
…að Vídeó Glottti sé með 350cc kitt í kátéemminu.
…að hann sé búinn að svindla sér í B flokkinn í sumar.
…að Katoom og Púkinn viti allt um málið.
21.8.2004…að Husqvarna sé að koma.
… að 10 hjól séu á leiðinni
…að sumir vilji að hjólin komi strax með næsta flugi.
…að mikill spenningur sé í loftinu vegna þessa.
18.8.2004…að tvídrifshjólið frá Yamaha sé í testi í Mogganum í dag
… að nú sé aftur byrjað að ræða flokkaskiptinguna í motocrossinu á spjallkorknum
… að sumir vilja B-flokkinn burt en aðrir vilji halda áfram að byggja B-flokkinn upp
… að þú hefur rétt á þinni skoðun
… að þú ættir að láta hana í ljós
9.8.2004 …að nú sé Gulli Langston í veseni
…að það sé annaðhvort að fá sér nýtt nick, eða…
….að flytja að heiman og fá sér Kavasaki
27.7.2004…að stórmyndin: “Leitin að Norðanmönnum” sé að koma í bíó!
…að hún sé um stóran hóp manna sem drukkna í vælupolli í motocrossbraut á Akureyri!
…að einu mennirnir sem komist lífs af séu Jói Arnar, Heiddi og Gunni Hákonar!
…að þeir haldi uppi heiðri Norðanmanna í keppnum sumarsins!
…að restin mæti til leiks á bikarmótið á Akureyri eftir harða topp 10 baráttu í hamborgaraáti sumarsins!
27.7.2004…að motocrossið á Akureyri um Verslunarmannahelgina verði eftirminnelegasta keppni ársinns
….að norðanmenn ætli að toppa allt sem hægt er að toppa
….að búast megi við þúsund áhorfendum
…að Halló Akureyri segi Halló við motocrosskeppendur
….að Raggi ætli að taka Frisk
…að Steini Tótu ætli að sýna mönnum hvernig karlmenn keyri motocross
….að Árni Belgur ætli að keppa því hann eigi von á að einhverjar stelpur horfi á sig


McGrath mætir í SteelCity

Það verður allt vitlaust í AMA Motocrossinu um næstu helgi í Steel City. RC þarf aðeins að ná 15 sæti í öðru hvoru mótoinu til að innsigla fimmta 250 titilinn í röð. Einnig er það Bubba Stewart sem jafnaði met RC í síðustu keppni með því að vinna 26 sigra í 125 flokknum, sem á þá núna góða möguleika á að slá það. Svo er það McGrath sem hætti atvinnumennsku í motocross og supercross í Janúar 2003 sem ætlar að mæta og taka þátt, en hann leggur mikið upp úr að það verði meira til skemmtunar heldur en að einhver alvara liggi þar að baki. Broc Hepler, spútnic maður tímabilsinns er svo á heimavelli og gaman að sjá hvort hann stenst álagið, þannig að stemningin verður gríðarleg.


Dagbók drullumallarans: Yamaha 2trac

Yamaha 2-trac kostar hálfa aðra milljón og einungis voru framleidd 250 hjól á árinu

Nýverið kom á almennan markað mótorhjól sem er afar óvenjulegt fyrir þær sakir að það er með drifi á báðum hjólum. Kíkjum nánar á gripinn.

Hvað er Yamaha 2-trac? Hjólið er í raun hið sama og Yamaha WR 450 nema með drifi á báðum hjólum.

Hvernig virkar framdrifið? Í stuttu máli er glussadæla fest á mótorinn og dælir hún vökva gegnum leiðslu sem liggur inn í rotor á framdekkinu sem fær það til að snúast. Afturdekkinu er svo snúið á hefðbundin máta með keðju og tannhjólum.
Hvers vegna framdrif? Hugmyndin er ekki ný, mönnum hefur lengi hugnast að láta vélaraflið knýja bæði fram- og afturdekkið en það er ekki fyrr en á síðustu misserum að menn hafa séð mögulegan markað opnast fyrir slík hjól. Það er helst fyrir tilstilli tækniþróunar og aukinnar sölu á mótorhjólum að menn hafa loks látið verða af því að setja slík aldrifshjól í framleiðslu. Yamaha reið á vaðið, KTM eru að blása til sóknar á þessum markaði og líklegt að fleiri fylgi í kjölfarið. Hugmyndin á margt skylt við fjórhjóladrifsbíla, að gefa ökutækinu jafnara og meira grip öllum stundum.

Gangverk framdrifsins er fest utan á mótorinn sem snýr dælunni og þrýstir vökvanum gegnum leiðslur inn í rotor-drif á framdekkinu.

Hvernig er samvinna fram- og afturdekks? Gagnstætt því sem margir halda er framdrifið í vinnslu öllum stundum, ekki bara ef afturdekkið byrjar að spóla. Framdekkinu er snúið áfram á sama hraða og afturdekkinu. Þegar afturdekkið missir grip og byrjar að spóla (s.s. í djúpum sandi) byrjar framdekkið að snúast hraðar til að halda í við afturdekkið. Þannig virkar framdrifið mest þegar á reynir og notar það allt að 15% af afli mótorsins til að toga hjólið áfram.

Hvernig kemur 2-trac út úr reynsluakstri? Við vitum nú þegar að að grunninum til er þetta bara hefðbundið WR 450 og það eitt og sér er gott mál. Hinsvegar breytir framdrifið aksturseiginleikunum verulega. 2-trac er rásfastur fákur. Þetta er líklega eins nálægt því að vera járnbrautarlest og mótorhjól mun nokkurntíma komast hvað aksturseiginleika varðar. Það er hreinlega eins og hjólið sé á teinum. Það getur bæði verið gott og slæmt, fer eftir því hvar og hvernig þú ert að keyra. Í djúpum sandi er það hrein snilld; þú bara miðar þangað sem þú vilt fara, snýrð upp á bensíngjöfina og hjólið hreinlega étur sig áfram og skilur afturhjóladrifnu hjólin eftir spólandi. Yfirburðir tvídrifsins koma einnig vel í ljós yfir torfæran og sleipan jarðveg þar sem hjólið er alger klifurköttur. Þar sem við erum að fjalla um stórt mótorhjól í öllum skilningi þess orðs, og tvö dekk sem snúast af krafti, verður maður töluvert var við beygjutregðu. Vertu ekkert að rembast við að taka innri aksturslínur í gegnum þröngar beygjur þar sem hjólið virkar í eðli sínu best þegar það fer sem beinast áfram. Þú þarft að átta þig á hvernig hjólið hegðar sér og vinna með því en ekki á móti. T.a.m. eru flestir vanir að aka gegnum sléttar og kantlausar beygjur eftir jöfnum bogalöguðum ferli. Á 2-trac verður þú að leggja þennan akstursstíl til hliðar því framdekkið togar þig áfram, byrjar að stýra en leitast á sama tíma við að rétta sig við og getur þar af leiðandi beint hjólinu út úr beygjunni sem var nú ekki beint hugmyndin í upphafi. Mér reyndist best að koma inn í slíkar beygjur í beinni línu, bremsa með afturdekkinu, búa til vinkil og snúa hjólinu í þá átt sem ég vildi fara, gefa svo aftur í og fara aftur út úr beygjunni í því sem næst beinni línu. Þannig virtist maður ná tökum á hjólinu og með bæði dekkin í vinnslu og þennan kraftmikla mótor var hröðun hjólsins mjög mikil út úr beygjunum og gaman að vera til. Ekki gafst færi á að prófa hjólið í fullorðins brekkuklifri en það er ljóst að á þessu hjóli gæti maður loks klárað brekkur sem hafa gert manni lífið leitt árum saman.

Það krefst endurskoðunar á akstursstíl að aka 2-trac, svo ólíkt er það hefðbundnum mótorhjólum.

Fyrir er WR 450 nokkuð þungt hjól og er framdrifið varla til þess fallið að létta hjólið. Þó segir Yamaha að 2-trac sé einungis 5 kílóum þyngri en afturhjóladrifni bróðirinn en hvað sem því líður verður maður nokkuð var við kílóin. 2-trac er engu líkt, ekki bara hvað aksturseiginleika varðar heldur hljómar og lyktar hjólið öðruvísi en önnur hjól. Já, þú heyrir nefnilega hvininn í glussanum undir hausnum á þér þar sem hann sprautast gegnum leiðslurnar og inn í framdrifið. Og þegar átökin eru mikil hitnar vökvinn og fer að gefa frá sér daufa lykt sem fer ekki fram hjá þér. Eflaust finnst einhverjum þetta fráhrindandi en persónulega fannst mér þetta bara ansi töff! Ohlins sér um fjöðrunina á 2-trac og hvað það áhrærir er hjólið hrein og klár snilld. Ohlins fjöðrun er jafn dýr og hún er góð. Það er sama hvar ber niður, í grjóti, í grasþúfum, í stökkum og lendingum, fjöðrunin hreinlega étur upp allan óþverra sem á vegi hjólsins verður.

Þegar upp er staðið má lýsa 2-trac með tveimur orðum: Grip, fjöðrun.

Er þetta hjól fyrir þig? Áttu digra sjóði inni á bankabókinni? Ert þú sífellt í baráttu við djúpan sand, sleipa steina eða brattar brekkur. Vilt þú vera öðruvísi? Ef það er málið er 2-trac inni í myndinni.

ÞK


Michael og Michael

Það voru Mickael Pichon og Michael Maschio sem unnu overall í Evrópu Grand Prixinu um helgina sem haldið var í Galdorf í Þýskalandi. Stefan Everts og Ben Townley urðu því að fresta því að fagna heimsmeistaratitlunum. Í MX2 flokknum var það Kawasaki ökumaðurinn Maschio sem varð overall fyrstur, með 1/6 og það var hanns fyrsti sigur frá í júní 2003. Ben Townley gat ekki forðað áreksti og krassaði eftir 400 metra og úr varð mikil þvaga, hann var svo ár og dag að starta hjólinu aftur og endaði svo aftur á hausnum þannig að hann hætti keppni í fyrra mótoinu, en vann það síðara örugglega. En overall var það svo Pourcel á Kawasaki sem varð annar og Claudio Federici á Yamaha þriðji. Í MX1 var það Pichon á Hondu  sem vann overall, annar varð Everts á Yamaha og þriðji Choppins á Hondu, en Coppins varð einmitt Bretlandsmeistari um daginn í Motocross. Keppnin er sýnd á EUROSPORT á eftir kl 9.55


Er þetta það sem við viljum!

Hvet allt hjólafólk til að lesa grein Ara Trausta Guðmundssonar um landnýðingsskap torfæruvélhjólaökumanna. Getur það verið að marg af því sem þar kemur fram sé rétt? Hvernig eigum við að bregðast við svona löguðu?…. Jakob.

Lesa meira af Er þetta það sem við viljum!


KTM RedBull liðið orðið opinbert

KTM hefur gefið út hverjir skipa Red Bull KTM liðið á næsta tímabili í USA. Það verða Nathan Ramsey, Josh Hansen, Ryan Mills, Jay Marmont og Mike Alessi sem allir munu aka 250F hjólum í 125 flokknum í SX og MX 2005, nema Alessi sem mun taka þátt í MX 2005 og svo báðum mótunum 2006. ” Við byrjum alveg með hreint borð. Við erum með glænýtt lið í Supercrossið og Motocrossið sem lætur að sér kveða á næsta tímabili. Þetta eru ungir, ákafir og einbeittir strákar sem við erum mjög stoltir af að hafa í Red Bull KTM Race liðinu” sagði Larry Brooks liðstjóri á blaðamannafundinum.

Síða 1 af 712345...Síðasta »