Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


Platan selst þokkalega

Vefurinn hafði samband við Heimi Barðasson pönk idol og spurðist fyrir um hvernig salan á stimpilhringja diskinum gengi. Sagði hann að 130 diskar hafa verið seldir en þá á eftir að athuga hvað selst hefur í þeim 10 verslunum sem diskinum var dreift í.  Miðað við Dr. Gunnar þá eru Stimpilhringirnir fjórða besta plata ársins á undan Hljómum.

Sagði hann þetta vera að skríða á núllið fljótlega þannig að allir diskar sem seljast héðan af koma til með að renna beint til VÍK.  Vefurinn hætti að pikka en það var mikill vaðall á Heimi.  37 mínútum síðar náði Heimir jarðsambandi og vefurinn gat slitið viðtalinu.


Klaustur 2004

Opnað verður fyrir skráningu í keppnina á Klaustri eftir þrjá daga (15 janúar).  Ég hvet alla áhugasama á að kynna sér vefsíðunahjá Kjartani.


Paris Dakar

Paris Dakar,
11.01.04 / Hjörtur Jónsson

Nú þegar 9 leiðum er lokið ag Dakar rallinu og 10. og 11. leiðum hefur verið aflýst vegna hættu á ræningjum og ekki neinar keppnis fréttir að fá næstu tvo daga ætla ég að hella smávegis úr viskubrunni mínum og miðla til þeirra sem vilja lesa.

Fyrsta keppnin fór fram í janúar 1979 og voru engin sérútbúin mótorhjól í keppninni. Þessi keppni var svo frumstæð að tímatökumennirnir fóru um það bil tveim tímum á undan fyrsta manni af stað inn í eiðimörkina með klukkurnar og þegar fyrsti keppandinn náði þeim skelltu þeir upp endamarki þar sem þeir voru ef þeir náðu ekki á þann stað sem þeir áttu að fara á samkvæmt upphaflegu plani. Fyrstu keppnina vann Frakkinn C. Neveu á Yamaha XT 550. Aðeins 8 mótorhjólamenn hafa unnið keppnina á hjóli. Oftast hefur Frakkinn Stephane Peterhansel unnið keppnina 6 sinnum, en hann er fyrstur í dag á bíl með rúmlega klukkutíma forskot. C. Neveu hefur unnið 5 sinnum og E. Orioli hefur unnið 4 sinnum, en hann datt út úr keppninni fyrir nokkrum dögum á bílnum sem hann ók.

Sú mótorhjólategund sem oftast hefur unnið er Yamaha með 9 sigra, BMW og Honda er með 5 sigra hvor tegund, KTM er með 4 sigra og Gagiva með 2 sigra.

Það er magnað hversu margir fyrrverandi hjólamenn eru að keppa á bílum í ár og á meðal efstu 8 eru þrír fyrrum hjólarar úr París Dakar. Þetta eru Peterhansel sem er fyrstur, Mayer í 6 og Magnaldi í 8. sæti, en þegar keppnin hófst voru þeir mun fleiri.

Upphafsmaðurinn og hugmyndafræðingurinn af þessari keppni var Frakkinn Thierry Sabine, en hugmyndina fékk hann 1977 þegar hann villtist á mótorhjólinu sínu í Líbönsku eiðimörkinni þegar hann var að taka þátt í rallý þar. Sabine fórst í þyrluslisi 14. janúar þegar hann var að stjórna 8. Paris Dakar rallinu. Hans einkunnar orð um Paris Dakar voru ” Paris Dakar er áskorun fyrir þá sem taka þátt og draumur þeirra sem ekki taka þátt”.


Supercross hjá Nítró

Verslunin Nítró býður öllum sem hafa áhuga á að horfa á Supercross, að mæta á föstudagskvöldum til okkar á meðan húsrúm leyfir.  Við erum með skjávarpa og verðum með léttar veitingar til sölu.  Að sjáfsögðu verða þetta áfengis og tóbakslaus kvöld.   Mætið endilega föstudagskvöldið 16. jan. 2004.  Kveðja Haukur


Hvaleyrarvatn er frosið

Staðfesting á ástandi vatnsins var að berast vefnum rétt í þessu.  Vatnið er frosið og eins og allir höfuðborgarbúar sjá, meiriháttar veður.  Daginn er farið að lengja þannig að menn ættu að geta hangið á vatninu eitthvað lengur en þeir gerðu rétt fyrir jól.


Mikið fjör á Chefs

Það var gífurlegt fjör á Supercrossinu í kvöld á Chefs.  Enginn smá akstur á Chad reed Yamaha manni eins og Bubbi segir vá…  En varðandi framhaldið u.þ.b. 20 manns mættu til að horfa á Supercrossið.  Margir þeirra voru í yngri kantinum semsagt framtíðar ökunaglar landsins.

Það er hálf aumkunarvert að þurfa að bjóðu ungum mönnum að koma á vínveitingastað til að horfa á bestu menn heims stunda íþróttina okkar.  Er ekki einhver þarna úti sem gæti haft hag af því að bjóða okkur eldri og þessum drengjum að horfa á Supercrossið á tjaldi.  Þetta er líkt og að mæta á félagsfund þar sem menn hittast og skiptast á skoðunum.  Þetta myndi tvímælalaust þjappa mönnum saman.  Eru ekki einhver umboð sem hafa áhuga á þessu.  Gaman væri að fá viðbrögð frá ykkur. Kv Þór Þorsteinsson

Síða 1 af 3123