• Forsíða
  • Spjall
  • Smáauglýsingar
  • Félögin
    • VÍK
      • Lög VÍK
      • Stjórn VÍK
      • Afsláttur
    • MotoMos
    • Tengiliðir
  • Að hjóla
    • Hvar má keyra?
    • Gættu að landinu
    • Þjálfun
    • Keppnisdagatal
    • Úrslit úr keppnum
    • Öryggi þitt
    • Brautir
      • Bolaalda
      • Álfsnes
      • MotoMos
      • Sólbrekkubraut
      • Þorlákshöfn
      • Akrabraut
      • Akureyri
      • Selfoss
  • Tenglar
    • Senda inn tengil
    • Íslandsmeistarar
  • Vefalbúm
  • Félagakerfi
    • Félagakerfi VÍK
      • Fjölskylduskráning í VÍK
    • MotoMos Félagsskráning
    • Félagakerfid
  • Um vefinn
    • Auglýsingar
    • Fréttaskot
    • Kennsla í notkun síðunnar
    • About the site in English
    • Gamlar fréttir
  • Námskeið VÍK

Bréf frá Keppnisstjóra

Vefstjóri | 30. júní, 2003 | 21:32

Vefnum var að berast bréf frá Hirti Jónssyni, keppnisstjóra í Svínhaga.  Bréfið fjallar um svindl í keppni.

Bréf frá Hirti Jónssyni, keppnisstjóra, 30 júní 2003.

Að gefnu tilefni og áskorana frá mönnum ákvað ég að skrifa lítið bréf um Svínhagakeppnina.

Það er flestum ljóst að það voru menn í keppninni sem svindluðu á meðan að á keppni stóð í því formi að setja á bensín á hjólin inn í braut. Þessir menn stimpluðu sig svo inn í lokin og náðu þar með einum hring. Þessir sömu menn ættu að sjá sóma sinn í því að fara fram á það við yfirtímavörð (Guðjón tölvukall) að láta fella út þennann síðasta hring eins og keppandinn sem fór hálfan hring við Úlfarsfell 3. mai og fór hann fram á það að sá hringur væri felldur út þetta er virðingarvert og sýnir að Ríkharður Reynirsson no 57 er sá keppandi sem setur heiðarleikann ofar öllu öðru.

Keppnisstjórn getur ekkert gert í málinu því það sem dómarar sjá ekki geta þeir ekki dæmt á. Dómarar geta og meiga aldrei dæma á hluti sem þeir sjá ekki.

Hvað varðar að Einar no 1stoppaði ekki á réttum stað eftir fyrsta hring þá hefði hann átt að fá 5 mín Víti fyrir það. Ástæðan fyrir því að ekki var dæmt á hann Víti er sú að STOPP skiltið var ekki nógu vel sjáanlegt. Í reglunum er sagt að sá fær Víti sem ekki stoppar við STOPP FLAGGARA mjög loðið eftir að tímatökubúnaður var gerður sjálfvirkur og á ábyrgð keppanda sjálfra, en Einar stoppaði þó seint væri og hljóp til baka og stimplaði sig inn.Ef hann hefði fengið Víti hefði Einar hefði bara kært þennann úrskurð og örugglega unnið á því að vafaatreiði í reglum eru alltaf keppanda í hag.

Það er búið að hamra á því að keppendur ættu að vera heiðarlegir í garð hvors annars og keppnisstjórn reynir að gera sitt besta í vali á stafrsmönnum til að keppnishaldið gangi vel fyrir sig.

Hjörtur keppnisstjóri.

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Aðsendar greinar, Endúró, Fréttir

PIRELLI umboð

Vefstjóri | | 21:31

JHM Sport hefur hafið innflutning á PIRELLI dekkjum.  Í tilkynningu frá JHM Sport kemur fram að ný sending hafi verið að berast sem innihaldi mismundandi PIRELLI dekk, frá 10″ upp í 21″, m.a. sandskófludekk.

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Fréttir

2nd Arctic-Trucks enduró áskorun!

Vefstjóri | 26. júní, 2003 | 21:34

Nú á laugardaginn 28.06 munum við í Arctic Trucks bjóða til sannkallaðrar enduró veislu!  Allir sannir enduró menn eru því vinsamlegast beðnir um að mæta í Skálafell kl.9:30 á laugardagsmorgunn.

Lagt verður af stað frá Skálafellsafleggjaranum kl. 10:00 stundvíslega, farið verður síðan um Þingvelli, upp Lyngdalsheiði (norður) og stoppað á Laugarvatni þar sem fyllt verður á bensín, hægt verður að setja bensín í trúss bílinn eða taka með sér pening og kaupa bensín á Laugarvatni. Grillið verður að sjálfsögðu með í för og fullt af “Keti og Smjeri” svo allir geti troðið duglega í sig hvort sem þeir eru á bláum, gulum, appelsínugulum eða grænum hjólum.  Haldið verður svo áfram með mannskapinn vel nærðan upp Lyngdalsheiði (suður) að Ljósafossi, yfir Mosfellsheiði og komið til baka í Skálafell.

Gulli “Sonax” og Yamaha Haukur eru keppnis menn í Yamaha liðinu og einir af fremstu enduró ökumönnum landsins og munu þeir leiða hópinn ásamt því að taka létta enduró kennslu á leiðinni.  Mætum með góða skapið og gerum þennan laugardag að ánægjulegum og eftirminnilegum enduró degi.

Ath. Öllum er boðið að taka þátt í þessari ferð með okkur, þeim að kostnaðarlausu.   F.h. Arctic Trucks Sigurjón Bruno

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Endúró, Fréttir

Frábær fjölmiðlaumfjöllun um Svínhaga keppnina

Vefstjóri | | 21:33

Hjörtur líklegur skrifaði frábæra grein í DV s.l. þriðjudag um keppnina. Greinin var prýdd meiriháttar myndum, teknum af einum af okkar allra bestu torfæruhjóla-ljósmyndurum landsins, Stefáni Jökli. Í gær kom grein á bílasíðum MBL um sama mót. Í gærkvöldi sýndi RÚV síðan sjónvarpsþáttinn hans Kalla, Vélhjólasport, til að fylgja þessu betur eftir. Myndir af mótinu hafa birst á heimasíðum www.hondaracing.is og www.icemoto.com. Sportið okkar er greinilega í miklum vexti og er þegar orðið ein af best kynntu íþróttagreinum í fjölmiðlum, að boltagreinum undanskildum.

Bjarni Bærings

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Fréttir

SUPERSPORT í kvöld – dúndur þáttur frá Klaustri

Vefstjóri | | 21:33

Nýr SUPERSPORT þáttur fer í loftið á PoppTíVí í kvöld kl. 21.55. Að þessu sinni verður þátturinn frá Klaustri og tileinkaður “Backstage” stemningunni sem var á svæðinu. Þetta er fjórði þáttur sumarsins og eru þættirnir farnir að braggast, þroskast og lengjast. Viðtöl við fullt af fólki og ótrúleg skot tekin í hita leiksins. Sýningar þáttanna eru sem hér segir:

Fimmtudagur, frumsýning kl. 21.55
Föstudagur, endursýning kl. 21.55
Laugardagur, endursýning kl. 19.03
Sunnudagur, endursýning kl. 23.03
Mánudagur, endursýning kl. 21.55

Okkur Jóa langar að benda öllum ofurhugum landsins á að hafa samband, supersport@popptivi.is, ef þeir hafa hugmyndir eða stönt í þættina.  Bjarni Bærings

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Fréttir

Kynsystur

Vefstjóri | 24. júní, 2003 | 21:37

Þær eru ekki margar stúlkurnar sem taka þátt í þessari íþrótt og því mikil hvatning fyrir kynsystur Heiðu að sjá hana taka þessu af alvöru.  Heiða byrjaði að hjóla snemma í vor og hefur náð undraverðum árangri á ekki lengri tíma.

Sjálf segist hún vera orðin gjörsamlega “hooked” og þetta vera rosalega gaman.  Hún sendi okkur tvær myndir af sjálfri sér, öðrum til hvatningar.

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Fréttir, Stelpur

Goslok

Vefstjóri | | 21:36

Í tilefni af því að þrjátíu ár eru liðin frá lokum fyrsta áfanga í að byggja motocrossbraut Vestmannaeyja (Goslok 1973) ætlum við í VÍV að bjóða þeim sem áhuga hafa að keyra og keppa með okkur í fyrstu umferð Vestmannaeyja- meistaramótsins sunnudaginn 6.júlí.

Mótið verður allt með léttasta móti og gert eingöngu til þess að hafa gaman af. Brautin verður sett upp með svipuðu fyrirkomulagi og keppt verður á henni í Íslandsmeistaramótinu 2004 (miklar breytingar.)

Við getum tekið á móti og sent hjól með Herjólfi eða Landflutningum ef menn vilja fljúga frá Bakka (5 mínútna flug.) á sunnudeginum uppl. gefur Jón Gísli í síma 4812219 eða 8979687

Athugasemdir:
0 »
Flokkar
Fréttir

Innskráning



  • Nýskráning
  • Týnt lykilorð?

Nýlegar athugasemdir

  • theDude
    Já, þetta verður spennandi að sjá....
  • aron berg
    Að sigra Evrópu er ekki nóg...
  • NoBrks
    Já heldur betur flottur þáttur og...
  • ingokr
    Sammála, flottur þáttur.
  • Ingvi19
    Töff mynd.
  • Jónsi
    Flott sjónvarp. mér langar í svona í...
  • Keli
    Tímarnir eru komnir núna á Mylaps....
  • theDude
    70 manns komnir, við hljótum að ná...

Flokkar

  • 35+
  • Aðsendar greinar
  • Ástand brauta
  • Dakar
  • Endúró
  • Events
  • Félagsstarf
  • Fjórhjól
  • Freestyle
  • Fréttir
  • Heyrst hefur að ….
  • Íscross
  • Keppnir
  • Klaustur
  • Krakkar
  • Motocross
  • MotoMos
  • MSÍ
  • MXoN
  • MXTV
  • Netviðtalið
  • Skemmtiefni
  • Slóðar
  • Stelpur
  • Supercross
  • Supermoto
  • T&T
  • Tips og Trix
  • Trial
  • Umhverfismál
  • Unglingar
  • Úrslit
  • Útlönd
  • Vefverslun

Stikkorð

Þorlákshöfn álfsnes úrslit þjálfun Akureyri bikarar Bolaalda Bryndís Chad Reed dagatal Endúró Endurocross Hella Horn í horn hornafjörður Iceland Jólagjöfin í ár Keppnir Keppnis Klaustur krókurinn kreppukeppni Líklegur LEX Games Mývatn miðnæturenduro midnight Motocross MotoMos MSÍ MXoN MXTV Myndir OffRoad Race Sólbrekka Signý SixDays Skráning Stolið hjól Unglingalandsmót usa VÍR vestmannaeyjar X games

Nýlegt spjall

  • Langur Fimmtudagur

    af BB

  • Breyttu seríalnúmerinu

    af aron berg

  • 125cc hjól í Bolöldu

    af aron berg

  • Nýja heimsmeistarahjólið KTM 350 SX-F frumsýnt

    af admin

Nýjar smáauglýsingar

  • Honda Crf 250 2007

    Er með hjól alveg í 100% standi, ekið um 20 t...
    [Read more]

  • Honda-Crf-250-2007

    Honda Crf 250 2007

    Er með hjól alveg í 100% standi, ekið um 20 t...
    [Read more]

  • WR-450 árg 2004 Skipti á bíl

    Er með til sölu gott eintak af Yamaha WR-450 ár...
    [Read more]

Ástand brauta

  • Ástand brauta hjá VÍK.
  • VÍK. Brautarmál.
  • Álfsnesbraut

Heyrst hefur að...

  • að það verði bikarkeppni í Álfsnesbraut 29. Ágúst.
  • að afrakstur kepninnar renni til MXON faranna okkar.
  • Framtíðarmótorhjól sem krassar ekki – Video

Enduro.is

  • Myndir frá Jaðri
  • Smá endúró bull fyrir þá sem sakna mýrarinnar á Klaustri.
  • Kári Jónsson Íslandsmeistari í Enduro 2010

Trial.is

  • Barna-rafmagns-trial hjól komin til landsins
  • Endurocross um Verslunarmannahelgina á útihátíðini Neistaflugi

Leit

Síða 1 af 6123456»
OPEX 129 queries. 0,717 seconds