Nýjar smáauglýsingar

Tímatökusendir

Nýrri týpan af tímatökusendi ásamt hleðslut...
[Read more]

Bling bling Kawasaki kxf 250 2008 - Vill 450 hjól í skiptum!

Er með fallegt kawasaki kxf 250 árgerð 2008 til...
[Read more]

óska eftir fjórgengis 250cc hjól

óska eftir 250+cc fjórgengis allt kemur til grei...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta


nóvember 2002

25.11.02 …að fyrstu Cannondale hjólin séu á leiðinni til Íslands.

…að Bílabúð Benna sé búið að festa sér umboðið og panta nokkur hjól.

25.11.02 …að Husaberg 450 hafi verið allt of öflugur.

…að skipun hafi komið frá eigendum Husaberg, KTM um að hjólið færi ekki á markað árið 2003.

…að KTM hafi ekki viljað skemma fyrir sér markaðsetningu á KTM 450.

19.11.02 …að sumir hafa skemmt sér vel og lengi.

…að sumir hafi komið einhverjum sólahringum of seint heim til sín.

…að sumir duttu næstum ofan í súpuskálina.

…að sumir voru sendir heim meðvitundarlausir með leigubílum.

…að lítið sem ekkert var um slagsmál en samt voru sumir barðir.

…að Aron (ekki pastrana) hafi hvílt sig vel á árshátíðinni og var útsofinn þegar henni lauk.

19.11.02 …að Valdi Pastrana sé orðinn gulur.

…að enn vanti einn meðlim í Suzuki liðið.

…að AronPastrana sé veikur af löngun í að komast í Suzuki liðið.

…að deilur séu hvort Aron eða Valdi eigi “Pastrana” viðurnefnið.

…að Aron hafi gefið Valda leyfi til að halda í “Pastrana” viðurnefnið.

19.11.02 …að veislustjórinn stal senunni á árshátíð VÍK.

…að Vídeó Glotti gerði harða atlöögu að honum en mistókst.

…að einhver unglingur hélt að Glotti væri Glanni glæpur.

…að hann veifaði 5000 kalla búntinu á barnum.

…að jakkafötin hafi verið sérsaumuð í Austurríki.

…að hann skilaði kvöldmatnum í fatahenginu áður en hann fór.

15.11.02 …að Haukur sé byrjaður að taka inn kalk-töflur svo hann fái ekki sinadrátt á árshátíðinni.

…að allir aðrir ætli hinsvegar að fá einhverskonar öðruvísi drátt.

14.11.02 …að VÍKverjar séu almennt byrjaðir á upphitun fyrir árshátíðina…

14.11.02 …að það hafi ávallt verið misskilningur að Jón Guð gangi á vatni.  Hann gengur á dempurum…

13.11.02 …að Jón Guð sé hærra settur en allir aðrir á Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur.

…að hann hafi verið 80cm hærri en hinir klukkan 14 í dag.

…að kl 18 hafi hann verið orðinn rúmlega 110cm hærri en hinir.

…að ástæðan er sú að vinnuplássið sem hann hefur er stútfullt af dempurum.

11.11.02 …að Gunni Yaris og Haukur Hilux hafi grillað alla á ísnum á sunnudaginn. Sölvi ætli að setja nitro í TM.

11.11.02 …Að KTM maður, einhver af starfsmönnum Bifreiðaverkstæðis Reykjavíkur hafi verið leiddur í járnum. Settur inn í sendibíl af econoline gerð, með bláum ljósum. Hann var víst að mótmæla Kárahnjúkavirkjun og ýmsum öðrum málum á öldurhúsum borgarinnar.

10.11.02 …að Heimir “Kjúklingur” Barðason mætti upp á Hvaleyrarvatn um þrjú leytið á laugardaginn.

…að Heimir þorði ekki að hjóla á ísnum og sagði öllum sem heyra vildu, að ísinn væri ekki tilbúinn.

…að líklega yrði hann ekki heldur tilbúinn daginn eftir (í dag)

…að Haukur og fleiri mættu klukkustund síðar.

…að þeir hjóluðu fram í svarta myrkur.

…að þeir segja að ísinn sé bara fyrir alvöru menn.

…að Heimir sé því “kjúklingur”

10.11.02 …að hrikalegur fjöldi mætti EKKI í Kívdnas á laugardaginn.

…að ekkert varð úr æfingunni.

8.11.02 …að hrikalegur fjöldi ætli að hjóla í Kívdnas á morgunnnnn… laugardaginn.

…að Einar Púki ætli sér að slá upp enduro leiki í Kívdnas.

…að Kívdnas sé einn af fáum stöðum þar sem ekkert er frosið… og fullt af sandi.

…að á morgun, í Kívdnas… verði enduro æfinga leikur… just for the fun of it…

8.11.02 …5 mínútum síðar…

…að Enigma deild Ríkislögreglustjóra hefur verið ræst út… Gera þeir ekki ráð fyrir að geta af-kóðað “Kívdnas” fyrr en á á sunnudaginn….

…að menn gera því ekki ráð fyrir neinum blikkandi jólaseríum í Kívdnas á morgunn.

4.11.02 …að nokkrir VÍK-meðlimir verði “teknir fyrir” á árshátíðinni

… að sumir hefðu steytt hnefum gegn saklausum pizzasendlum

… að einn hafi kveikt sér í pípu og látið frúna sjá um að afgreiða málið

… að falin myndavél hafi náð þessu öllu á filmu

… að nefndin sé rétt að byrja

30.10.02 …að undirbúningur sé á fullu fyrir árshátíðina að margt skemmtilegt verði á boðstólnum

…að Land og Synir séu að undirbúa hörku prógram

…að matseðillinn verði rosalegur

…að fjölmenni hafi verið á ísnum á Sunnudag

…að Valli hafi verið kóngurinn

…að KG sé ekki sáttur að Valli sé með 800+ skrúfur að aftan

…að hann ætli að losa sig við 10 kíló til að fara hraðar

…að það sé vitlausasta hugmynd sem KG hafi heyrt

…að KG fari að lögmáli Davíðs (‘Olafssonar)

…að lögmál Davíðs sé “karlmenn keyra 500 og eru 100 kíló”

…að kíló sé = traction

…að “silly seasonið” sé að ná endahraða

…að nýja KTM 450 crosshjólið sé algjör BOMBA

…að það sé sagt og skrifað algjör B O B A eins og Bubbi sagði

…að hjólið hafi unnið í fyrstu keppni í Japan

…að eitt eintak sé komið til landsins

…að Hanni eigi stykkið og sé kominn í Team KTM

…að hann hafi leyft Helga Val og Einari að prófa í Sandvík

…að þeir hafi talað tungum á eftir

…að enn vanti fjórða mann í Team KTM


Félagsfundur AÍH

Vélhjóladeild AÍH (Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar) heldur sinn annan félagsfund næstkomandi þriðjudag.  Stjórn AÍH hefur ákveðið að hafa þessa fundir mánaðarlega í allan vetur.
Efni fundarins verður;
- Íslandsmótið í íscrossi.
- Keppnisreglur í íscrossi.
- Kynning og kennsla á; íscross dekkjum, stillingum, breytingum og aukahlutum tengdum íscrossi í boði Heimis Barðassonar og Þorgeirs Ólasonar.
- Vörukynning frá Versluninni Moto.
- Íslenskt íscross vídeóefni.
Félagsfundurinn verður á “nýja” Bókasafni Hafnarfjarðar (við hliðina á Súfistanum) og hefst hann stundvíslega klukkan 20.  Húsinu verður læst klukkan 20 og þeir sem koma einni mínútu of seint munu ekki komast inn.  Fundinum lýkur kl. 22.
Allir eru velkomnir.


Stofnfundur VÍR

Viljum við þakka sýndan stuðning og góða mætingu á stofnfundinn, um 20 manns mættu og fengum við digga aðstoð góðra manna við stofnun félagsins sem við þökkum kærlega fyrir, þetta eru þeir heiðursmenn, Aron Reynisson form. A.Í.H. og Hákon O.Ásgeirsson form. V.Í.K. Sérstakar þakkir fær Aron Reynis, fyrir diggan stuðning og öflun gagna til stofnunar félagsins. Einnig viljum við þakka Ómari jónssyni, faðir Arons Pastrana, diggan stuðning með fundarhaldið.
Beztu þakkir til allra sem studdu okkur við stofnun þessa félags. Stjórn V.Í.R. Lesa meira af Stofnfundur VÍR


Grein frá einum dönskum

Vefnum var að berast grein frá íslenskum ferðalangi í Danmörku.

Nú fyrir stuttu var undirritaður í Skandinavíu í sinni sjötugustu en ekki síðustu ferð um mesta menningar pláss jarðarbúa. Það er að sjálfsögðu ekki í frásögu færandi ef ekki væri eitt sem setti mark á ferðina öðru framar.  Niðri á brautarstöð í Kaupmannahöfn áskotnaðist mér eintak af Dönsku útgáfuni af BIKE.  Bike er að mestu götuhjólablað sem kemur út á fjórum norðurlandatungum og kaupir undirritaður það þegar ekki er grænni taða í sjónmáli. En það sem sagt skildi er að þessu eintaki fylgdi svokallaður DVD diskur fullur af MC efni sem hafði verið tekið á Spáni er alþjóðlegur hringur MC blaðamanna var að prufukeyra öll helstu götu(keppnis)hjólinn 2002.  Ducati 748R, 998R, Honda, Suzuki, Kawasaki, Yamaha ZXVTRGSXYZFSP – og Honda CBR 600 sport.  Það hefur verið þrælgaman að skoða þetta efni sem teigir sig í tugi ef ekki hundruða mínútna og væntir undirritaður að þess sé að vænta að þessi tuttugu eða svo mótorhjólablöð muni fljótlega senda DVD efni frá torfæruhjólunum!!!!

Kveðja # 9,52,99.


Stofnfundur VÍS

Stofnfundur VÍS verður haldinn að öllu óbreyttu á miðvikudagskvöldið 20.11.2002 kl 20:00 í Laugardalnum, húsnæði ÍSÍ.


Frétt tekin af mbl.is

Átta slösuðust þegar hestar fældust.
Átta ferðamenn, sem voru að leggja af stað í hestaferð á vegum Íshesta í gærmorgun, voru fluttir á slysadeild, en þeir höfðu allir dottið af hestbaki er hestar þeirra fældust. Talið er að snarpur vindsveipur hafi fælt hestana með þessum afleiðingum. Ekki er talið að fólkið hafi hlotið alvarleg meiðsli.

Af öllum hugsanlegum ástæðum, þá hvarflaði ekki að vefstjóra að vindurinn væri sökudólgurinn.  Afstaða himintunglanna var hinsvegar sérstök fyrir ofan Hafnarfjörð um helgina eins og dæmin sanna.  Einn hestur tók upp á því að henda manni af og allir hinir gerðu það sama.  Einn VÍKverji hóf dans upp á borði og allir hinir fylgdu á eftir.  Einn drakk aðeins of mikið og hinir hjálpuðu honum.  Sumir sofnuðu, aðrir ældu en flestir dönsuðu þó.  Vefnum hefur hinsvegar ekki tekist að fá neinar fréttir af árshátíðinni þar sem enginn virðist muna neitt.

Síða 1 af 512345