Nýjar smáauglýsingar
Stoli-XR-600

Stolið XR 600

Endilega hafið augun opin fyrir þessu hjóli....
[Read more]

til-slu--RUKKA-mthjlagalla

til sölu : RUKKA móthjólagalla

Rukka mótorhjólagalla notuð. Jakka stærð 56...
[Read more]

til-slu-vinnu-standari

til sölu: vinnu-standari

Hjóla-vinnastandari, hæð niðri 22,5/30 cm , up...
[Read more]

Nýlegt spjall

Ástand brauta

Við á Facebook


Hinir aumu framhandleggir

höfundur: Kjartan

Steyptir framhandleggir

Hver kannast ekki við þetta. Rétt eftir startið og þú ert byrjaður að pikka upp aðra ökumenn. Þér finnst ekkert geti stoppað þig, loksins færðu medalíu. Eftir 2 mínútur ferðu að verða var við fiðring í framhandleggjunum, eftir 3 mínútur breytast fiðringurinn í sting og eftir 5 í sársauka, og eftir 7 minna framhandleggirnir mest á steypuklump og þér finnst þú varla geta haldið í stýrið. Medalían fokin út í veður og vind og núna snýst þetta bara um að lifa af. Ef þú ert í motocrossi þá áttu bara 10 mínútur eftir, ættir að lifa það af, en í enduroi áttu ekki eftir nema 110 mínútur og þá snýst það upp í vonleysi. Þú ert orðinn fórnarlamb þess sem allir mótorhjólamenn hræðast, í Evrópu kalla menn það Bervoets syndrom, vegna þess að Belgi að nafni Marnicq Bervoets hefur verið að berjast við þetta í mörg ár. Sumir segja að hann hafi tapað nokkrum 250 titlum til Stefans Everts út af þessu. Og það virðist vera sem að allir verði fyrir þessu, og sama hvernig menn aka. Áður nefndur Everts finnur stundum fyrir þessu og Lesa meira af Hinir aumu framhandleggir


Project Arngnold

höfundur: Þórir Kristinsson

Still, the grass is greener on the other side. Team V.H.S. demanded more from their KX´s for the Icleandic mx series. More of everything to be exact. The project: Dress the mighty KX 500 motor in a 250 frame. It seemed that few had attemted this before. After asking around they dug up one identical monsterbike down in Australia but that was about it. So it was time to improvise. Long nights of welding and throwing wrenches at the wall led finally to this sleek beast. The biggest problem was making new mounts for the motor. The frame had to be cut and made slightly higher to hug the big monster. The radiator-, air box and most other frame mounts had also to be remade. Next a pipe from a CR 500 was chosen and modified to give real midrange blast. The silencer was the short KX 250 type, modified to give quick snap but to keep noise levels down at the same time. They figured this bike wanted to go fast so the swingarm was made 1 inch longer and Öhlins steering damper mounted in the front to increase high speed stability. Suspension is standard Kayaba in the rear, made stiffer with revalving and Marchocci up front.
So after about 150 workhours, Arrgnold saw light of the day. So how did it do? It easily pulled all the starts and went away to win it´s first ever race with it´s master sitting frozen on top.


Endurotillögur !

Það sem kom fram á fundinum hjá VÍK um daginn voru ágætis tillögur varðandi komandi Enduro sumar. Það er ljóst að það þarf að auka stigafjöldann í Enduroinu fyrir Meistaradeild.

Eftir að hafa velt þessu fyrir mér fram og aftur með það í huga að nýta daginn sem best og skapa sem minnsta slysahættu á keppendum er mín tillaga svona:

B-flokkur keppir á undan í lágmark 60 mín og hámark 90 mín (best væri að keppa í 60 mín í fyrstu keppni, 75 mín í annarri og 90 mín í þeirri síðustu).

Meistaraflokkur keppir svo strax á eftir B- flokki í 90 mín og er svo flaggað út. Þegar þeir eru komnir í mark mega þeir ekki fara inn í pitt til að fylla á bensín né þiggja neina þjónustu eftir að þeir eru flaggaðir 5-10 mín á eftir að síðasti maður er kominn í mark er ræst aftur og þá jafnvel í öfugan hring aftur í 90 mín. Með þessu eru komnar tvær keppnir og búið að tvöfalda stigin til Íslandsmeistara. Eini gallinn við þetta er að þeir sem detta út í fyrri umferðini eru með fullann tank af bensíni og óþreyttir. Þess vegna væri réttast að ræsa í seinni keppnina eins og menn komu í mark í fyrri keppninni, en ekki eins og reglurnar segja til um að staða til Íslandsmeistara ráði alltaf starti, heldur árangur dagsins. Þetta þarf ekki að vera kostnaðarauki fyrir keppnishaldið það þarf bara að byrja aðeins fyrr á fyrstu keppni (mæting kl 9,00 á morgnana) og verðlaun eru eins og í crossinu samanlagður árangur dagsins ræður verðlaununum.

Með þessu fækkar stigunum í B-deild fyrir liðin því þeir keppa bara einu sinni yfir daginn. Því ætti að vera meiri ávinningur að vera með allt liðið í Meistaradeild og ná sem flestum stigum þar fyrir liðið. Einnig mætti athuga með það að aðeins 1 úr liðinu megi keppa í B-deild, en hinir 3 verði að vera í Meistaradeild.

Hvað B-deildina varðar þá var reynt á Hellu fyrirkomulag er kallaðist Lágvarðardeild. Þetta þrælvirkar ef rétt er af staðið. Það sem var að á Hellu í Lágvarðardeildini var að forgjöfin sem keppendurnir fengu var of mikil. Ég fór yfir tímana á öllum sem kepptu í þessum flokki og gaf ég þeim 30 sek í forgjöf en ekki eina mín eins og keppt var eftir og útkoman var sú að ef að allir hefðu haldið út keppnina á sínum besta hring hefði munað aðeins 30 sek á efstu 3 mönnum og voru þar bæði elsti keppandinn og sá yngsti. Lesa meira af Endurotillögur !


Klikkuðustu Stunt atriði á Íslandi!!!

Á VÍK árshátíðinni átti að sprengja loftið á Reiðhöllinni í Víðidal og koma öllum árshátíðar-gestum það vel á óvart að þeir mundu aldrei muna annað eins.  Síðasta alvöru STUNT atriði var fyrir ónefndum árum og algjörlega ó-planað en það voru tilþrif ónefnds hjólamanns, ekki ódrukkinn, í jakkafötum á 11 þúsund snúningum upp Suðurlandsbraut.  Sú ferð endaði framan á leigubíl og hvorki hjól né jakkaföt voru nothæf á eftir.  Vefstjóri saknar ónefnds og biður hann um að vakna af dvala sínum og byrja að hjóla aftur.
En aftur að VÍK STUNT atriðinu sem verður á heimsmælikvarða svo vægt sé til orða tekið.  Ekki stóð til að kynna þetta atriði fyrirfram og átti að koma öllum “hrikalega” á óvart.  Eftir ýmsar vangaveltur komst sú niðurstaða á pappír að ekki væri það réttlætanlegt að láta álíka STUNT fréttast eftirá… fyrir þá sem ekki mæta.
Fredrik Hedman, einn besti hálofta mótorhjólamaður Evrópu og fyrrverandi atvinnumaður í motocross mun sýna listir sýnar í Reiðhöllinni í Víðidal á árshátíð VÍK. Þetta er einstakt tækifæri til þess að sjá Freestyle motocross á heimsmælikvarða. Þannig að það er eins gott að tryggja sér miða á árshátíðina núna, því engin alvöru mótorhjólamaður klikkar á þessu.  Myndir af Fredrik hafa verið birtar.

Síða 4 af 41234