Handtalning á úrslitum úr Moto 1 á Ólafsvík hafa nú borist frá Florida og liggja niðurstöður fyrir. Sjá úrslit frá Ólafsvík 30 júní.
Handtalning á úrslitum úr Moto 1 á Ólafsvík hafa nú borist frá Florida og liggja niðurstöður fyrir. Sjá úrslit frá Ólafsvík 30 júní. Engar fréttir né úrslit hafa borist vefnum frá motocrossinu á Svalbarðseyri. Ekki náðist að birta tilkynningu um beina útsendingu á skjá einum í gær og er beðist velvirðingar á því. Það er mikilvægt að allir sem og liðin sendi inn alla fréttapunkta, heyrst hefur og kjaftasögur svo hægt sé að halda þessu lifandi. Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með framgangi Argnolds hér á síðunni þá er Argnold borinn og fæddur hjá Vélhjól og Sleðar. VHS tók sig til fyrr í sumar og hóf verkefni sem strax fékk nafnið Argnold. Argnold er Kawasaki KX250 þar sem mótorinn var látinn fjúka og mótor úr KX500 settur í staðinn. Tilkynning frá VHS barst vefnum um að Argnold væri kominn í gang.
Nú er bara að bíða og sjá. Séð utanfrá VHS virtist sem verkefninu væri hrint af stað vegna óánægju Ragga með eigin framgöngu í keppnum. Meðan á smíðinni hefur staðið hefur Raggi hinsvegar tekið sig hressilega á og er farinn að skila liði VHS topp árangri. Spurningin síðan hvort Raggi haldi því striki áfram eða hætti árangri sínum með því að stökkva upp á Argnold? Kistufellstúrinn er nú í fullum undirbúningi hjá Vélhjól og Sleðar. Gert er ráð fyrir einhverjum útlendingum og er mikill hasar í gangi. Sjá nánar áwww.biker.is Vélhjól og Sleðar hafa skrifað undir kaupsamning að nýju húsnæði við Funahöfða 19 og munu flutningar eiga sér stað í næsta mánuði. Á sama tíma er Argnold, hinn nýji KX+ að gangast undir prófanir. Sjá nánar fréttavef www.biker.is. | ||