MotoMos er að tækla bæjaryfirvöld vegna afnota af landi. Meðfylgjandi er svar Bæjaryfirvalda ásamt athugasemdum frá MotoMos.
Bréf frá Mosfellsbæ til MotoMos. Málefni: Erindi vélhjólaklúbbsins MotoMos um afnot af landi á Leirvogstungumelum. Á 29, fundi skipulags og bygginganefndar Mosfellsbæjar 29 mai 2001 var fyrirspurn yðar til umfjöllunar og svohljóðandi bókun var gerð: Vísun frá fundi íþrótta og tómstundanefndar þ. 8. mai 2001. Frestað. Næsti fundur skipulags og bygginganefnadar verður haldinn þ. 12 júní 2001, Virðingarfyllst, f.h. Tækni og umhverfissviðs: Tryggvi Jónsson, Bæjartæknifræðingur. ( Tilvitn. líkur )
Þetta þýðir á mannamáli að þeir sem eru í nefndinni eru þessa dagana að leita að leið til að sleppa frá hugsanlegri ábyrgð á braut handa okkur. Ef þeir finna aðferð fljótlega til að senda þetta eitthvert annað innan bæjarkerfisins gera þeir það á næstu vikum. Fróðlegt verður að sjá hvernig þeir tækla þá staðreynd að mörg minni bæjarfélög landsins, t.d. Selfoss. Þorlákshöfn, Ólafsvík, Akureyri, Grindavík, Vestmannaeyjar og fleiri á leiðinni, sýna mun meiri vilja til að halda þeirri traffík og innkomu sem fylgir íþróttum í sinni heimabyggð. Það er ljóst að með hverri keppni koma yfir 100 keppendur og aðstoðarmenn auk áhorfenda. Allir skilja eitthvað eftir í þjónustufyrirtækjum viðkomandi bæjarfélags. Á meðan verðum við að halda gryfjunum í horfinu, án þess að eyða eða reikna með of miklu í málið. Við höldum okkar striki þó hægt fari. MotoMos:)
Landvörður Lambhaga og nærliggjandi svæðis gaf sig á tal við umsjónarmann vefsíðunnar og talaði um miklar gróðurskemmdir. Mikil vinna hefur verið lögð í uppgræðslu sem síðan er fótum troðin í algjöru virðingarleysi af einhverjum hjólamanni / mönnum. Þetta svæði ásamt fleirum á landinu er í stuttu máli frábært hjólasvæði. Með þessu áframhaldi verða komin upp skilti þar sem hjól eru bönnuð og þegar það gerist þá eru þau komin til að vera. Svæðið er morandi í slóðum sem hreinn draumur er að keyra. Sá mikli fjöldi hjólamanna sem hefur í gegnum árin notið þessa hjólasvæðis án athugasemda og í vinsemd Landvarðar mun hálshöggva, húðfletta og tæta í sig hvern þann sem sést til eða fréttist af vera valdandi að gróðurskemmdum. Það fáránlegasta af öllu er að einmitt á þessu svæði þar sem allt er morandi í slóðum, þurfa menn að vera frekar heilalausir verði þeir valdir að skemmdum. Vefurinn auglýsir því “open season” á alla heilalausa og greiðir 800 krónur fyrir bensínhöndina og 270 krónur aukalega ef úlnliðurinn fylgir.
Laugardaginn 9 júní býður Verslunin MOTO og KTM Ísland öllum hjólamönnum og konum í hjólatúr. Lagt verður upp frá Kolviðarhól kl. 12. Menn eru beðnir um að mæta klukkan 11. Ferðin er 4-5 klst. með óvæntum uppákomum og reyndum leiðastjórum. Jón Guð og Einar eru að plotta leiðina en túrin er fyrir “ALLA” óreynda sem reynda. Lágmarksbensín fyrir tvígengishjólin er 12 lítrar þannig að menn verða að vera með aukabensín með sér.
Grein hefur borist vefnum frá Hafsteini Hafliðasyni, umhverfisstjóra Árborgar. Þetta er virkilega góð grein og nú þegar orðin að skyldulesningu fyrir alla hjólamenn. Höfum ávallt hugfast að fræða nýliða um þær reglur sem við virðum.
Hérna koma úrslitin úr Motocrossinu í Vestmannaeyjum, restin kemur seinna, þ.e. tímar úr hverju motoi fyrir sig o.s.frv. Fullt af keppendum er nú veðurtepptur í Eyjum þar sem ekki er flogið vegna veðurs. Í kvöld verður hörkuskemmtun í Herjólfsdal þar sem búið er að setja upp tjald og skapa á sanna Þjóðhátíðarstemmningu. Stimpilhringirnir koma fram og er nokkuð ljóst að þeir verða beðnir um að koma fram á næstu þjóðhátíð. Árni Johnsen ætlar einnig að mæta á svæðið og taka kartöflusönginn hinn eina sanna. Af útlendingunum er það af frétta að Joe Columbrero mætti og keppti í B flokki en gekk ekki sem skyldi. Tom Webb gat ekki mætt af óviðráðanlegum orsökum en því miður var þetta síðbúið aprílgabb af hálfu Castrolliðsins. Þess má geta að þó Castrolliðið hafi ekki gengið eins og áætlað var í keppninni er nokkuð ljóst að þeir hafi unnið “flottfaktorinn” svokallaða þar sem þeir dreifðu plakötum af liðinu og gáfu út geisladisk sem gefin var á keppninni.Þá er fréttum úr Eyjum lokið, Kv. Eva Björk Fréttaritari VÍK í Eyjum.
Umsjónarmaður vefsíðunnar er staddur upp á hálendi og ekki í aðstöðu til að koma efninu frá sér á viðunandi hátt þar sem gagnahraði (tengihraði) netsins í gegnum GSM síma er lítill. Samt sem áður hefur öllum upplýsingum verið komið á framfæri þó svo “útlitið” á efninu sé hrátt.